Tugum starfsmanna Hafró sagt upp og Bjarna Sæmundssyni lagt Atli Ísleifsson skrifar 9. janúar 2019 18:05 Hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni verður lagt í haust. Fréttablaðið/Pjetur Milli tuttugu og þrjátíu verður sagt upp hjá Hafrannsóknastofnun fyrir næstu mánaðarmót vegna hagræðingarkrafa stjórnvalda. Þá verður Bjarna Sæmundssyni, öðru rannsóknarskipi stofnunarinnar, lagt í haust. Þetta staðfestir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafró, í samtali við Vísi. Hann segir þetta nauðsynlegar aðgerðir til að mæta niðurskurðarkröfu stjórnvalda. Hafró hefur verið gert að hagræða í rekstri um 303,5 milljónir króna í heildina, líkt og fram kemur á heimasíðu Hafró. Sigurður segir að kröfur stjórnvalda um hagræðingu hafi komið sér að hluta á óvart. Bæði dregur úr fjárveitingum og minnkandi framlagi úr svokölluðum Verkefnasjóði sjávarútvegsins. „Við áttum von á almennri hagræðingarkröfu, eins og verið hefur síðustu ár, en ekki þessum trakteringum,“ segir Sigurður.Milli 20 og 30 sagt upp Um 200 manns starfa hjá Hafró. Flestir séu starfsmennirnir í Reykjavík, um hundrað, og þá eru tvær áhafnir á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, um fjörutíu manns í heildina. Þá eru starfsmenn á Akureyri, Grindavík, Hvanneyri, Ísafirði, Ólafsvík, Selfossi, Skagaströnd og Vestmannaeyjum.Sigurður Guðjónsson er forstjóri Hafró.Mynd/HafróVarðandi uppsagnir segir Sigurður að mestu muni muna um fækkun áhafnarmeðlima þar sem öðru rannsóknaskipinu verði lagt. Þó þurfi einnig að segja upp fólki í landi.Þungt hljóð í starfsfólki Sigurður segir að starfsfólki hafi verið greint frá stöðunni á starfsmannafundi á mánudag. Einstaka starfsfólki hafi enn ekki verið sagt upp. „En við erum náttúrulega búin að upplýsa okkar fólk jafnóðum. Um leið og við getum.“Hvernig er hljóðið í starfsfólki?„Ég þarf náttúrulega ekkert að segja þér það. Það er þungt. Að sjálfsögðu.“Með tilliti til stöðunnar, hvernig mun ykkur ganga að sinna ykkar skilgreinda hlutverki?„Þetta hefur mjög ill áhrif á það. Við munum eiginlega alls ekki getað sinnt okkar hlutverki. Það vantar talsvert í það,“ segir Sigurður. Akureyri Grindavík Sjávarútvegur Vísindi Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Eiga von á öðru eldgosi Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Innlent Fleiri fréttir Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Sjá meira
Milli tuttugu og þrjátíu verður sagt upp hjá Hafrannsóknastofnun fyrir næstu mánaðarmót vegna hagræðingarkrafa stjórnvalda. Þá verður Bjarna Sæmundssyni, öðru rannsóknarskipi stofnunarinnar, lagt í haust. Þetta staðfestir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafró, í samtali við Vísi. Hann segir þetta nauðsynlegar aðgerðir til að mæta niðurskurðarkröfu stjórnvalda. Hafró hefur verið gert að hagræða í rekstri um 303,5 milljónir króna í heildina, líkt og fram kemur á heimasíðu Hafró. Sigurður segir að kröfur stjórnvalda um hagræðingu hafi komið sér að hluta á óvart. Bæði dregur úr fjárveitingum og minnkandi framlagi úr svokölluðum Verkefnasjóði sjávarútvegsins. „Við áttum von á almennri hagræðingarkröfu, eins og verið hefur síðustu ár, en ekki þessum trakteringum,“ segir Sigurður.Milli 20 og 30 sagt upp Um 200 manns starfa hjá Hafró. Flestir séu starfsmennirnir í Reykjavík, um hundrað, og þá eru tvær áhafnir á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, um fjörutíu manns í heildina. Þá eru starfsmenn á Akureyri, Grindavík, Hvanneyri, Ísafirði, Ólafsvík, Selfossi, Skagaströnd og Vestmannaeyjum.Sigurður Guðjónsson er forstjóri Hafró.Mynd/HafróVarðandi uppsagnir segir Sigurður að mestu muni muna um fækkun áhafnarmeðlima þar sem öðru rannsóknaskipinu verði lagt. Þó þurfi einnig að segja upp fólki í landi.Þungt hljóð í starfsfólki Sigurður segir að starfsfólki hafi verið greint frá stöðunni á starfsmannafundi á mánudag. Einstaka starfsfólki hafi enn ekki verið sagt upp. „En við erum náttúrulega búin að upplýsa okkar fólk jafnóðum. Um leið og við getum.“Hvernig er hljóðið í starfsfólki?„Ég þarf náttúrulega ekkert að segja þér það. Það er þungt. Að sjálfsögðu.“Með tilliti til stöðunnar, hvernig mun ykkur ganga að sinna ykkar skilgreinda hlutverki?„Þetta hefur mjög ill áhrif á það. Við munum eiginlega alls ekki getað sinnt okkar hlutverki. Það vantar talsvert í það,“ segir Sigurður.
Akureyri Grindavík Sjávarútvegur Vísindi Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Eiga von á öðru eldgosi Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Innlent Fleiri fréttir Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Sjá meira